Í sumarbúðunum bjóðum við skemmtilega dvöl fyrir börn fædd á árunum 1997 - 2004. Tveir flokkar verða fyrir aldurshópinn 7-9 ára, einn flokkur fyrir 8-12 ára börn og annar fyrir 10-13 ára krakka. Auk þess verður sérstakur ævintýraflokkur fyrir 12-14 ára unglinga, þar sem mörg spennandi og óhefðbundin ævintýri verða í boði.
Sumarbúðirnar eru í fallegu umhverfi við Eiðavatn, í u.þ.b. 18 km fjarlægð frá Egilsstöðum. Aðstaðan er öll mjög góð, jafnt inni sem úti. Öryggisbúnaður við bátsferðir er eftir ströngustu kröfum og björgunarvesti á hvert barn. Aðstaða fyrir fatlaða er einnig góð enda er hönnun hússins og umhverfis gerð með aðgengi fatlaðra í huga.
Kirkjulegar sumarbúðir hafa verið á Eiðum síðan sumarið 1968. Framanaf árum í húsnæði barnaskólans en frá 1992 í byggingu Kirkjumiðstöðvarinnar við Eiðavatn sem var vígð 25. ágúst 1991. Kirkjumiðstöð Austurlands er sjálfseignarstofnun á vegum safnaðanna á Austurlandi. Margir eiga góðar minningar úr sumarbúðastarfinu og margháttuð reynsla af slíkri starfsemi hefur orðið til á undanförnum árum.